Djöfull er ég sáttur við kvennalandslið okkar Íslendinga. Vinna Frakka um daginn og svo Serba í gær, og það 5-0. Ég verð að segja að ég er ekki mikið fyrir að horfa á kvennaknattspyrnu, en þessi leikur fannst mér bara hin besta skemmtun og liðið að ná frábærlega vel saman.
Má með sanni segja að við séum með feikilega gott kvennalið, það er annað en má segja um karlaliðið!
Vona að þær haldi áfram á sömu braut, þá eru þær alveg líklegar til þess að gera einhverjar rósir.
You go girls!!