Liverpool hafa þetta, því að í ár geta bæði lið hvílt lykilmenn og svo framvegis. Vegna refsinga hafa AC Milan í raun ekki átt möguleika á neinni annarri dollu og að venju þá reyna Liverpool bara að vinna þessa dollu og hundsa allar hinar.
Ég tel þó að AC Milan hafi þetta að lokum, þrátt fyrir þesas ótrúlegu seiglu Liverpool. AC Milan slógu út hina “bestu” á Englandi og ef AC Milan getur tekið United þá getur það tekið Liverpool.
AC Milan menn gera ekki sömu mistök aftur og það er vitað mál að þeir munu leggja allt í sölurnar til þess að ná fram hefndum gegn Bítlaliðinu.
Það er bara ein leið fyrir þennan leik og það er ítalskur sigur, og ég vonast eftir slíkum sigri.