Ólafur Ingi Skúlason er sem kunnugt er byrjaður að æfa á fullu með Arsenal, í gær föstudaginn 19.okt mætti hann á æfingu hjá varaliðinu og voru heldur fáir á henni þannig að þeir voru með aðalliðinu á æfingu!!! allavega spilaði Óli með Keown og Upson í vörn á æfingunni og átti hann að gæta Kanu og er skemmst frá því að segja að Kanu tók hann létt og Henry sagði víst Kanu að róa sig aðeins. gaman að þessu!!! en gott að vita að hann sé komin á fullt aftur.
Kyntröll