Já undirritaður var að fylgjast með á www.livescore.com enda tippaði ég á leikinn, og ef ég fer ekki með rangt mál, þá byrjaði hann 14:15. Sat ég með eftirvæntingu og horfði á stöðuna Barnsley 1-1 W.B.A og undir stóð HT (halftime), síðan fór ég í sturtu og kom stuttu síðar (10 mín c.a) og sá að þá stóð Barnsley 1-1 W.B.A, sem getur einfaldlega ekki passað þar sem síðari hálfleikur var eftir og því voru víst staðfest úrslit 1-1 og er ég ansi ósáttur með það. Var hætt við leikinn eða hefur einhver hugmynd um það?