Ég fletti létt í gegnum reglugerðir KSÍ fyrir knattspyrnuþjálfara en þar er ekki tilgreindur neinn lágmarksaldur.
Hins vegar mæli ég með því að þú sendir fyrirspurn til KSÍ á
ksi@ksi.is þar sem þú getur fengið svör við lágmarksaldri (æskilegur lágmarksaldur) auk annarra þátta sem viðkoma knattspyrnuþjálfun.
Persónulega myndi ég ekki mæla með því að fara á námskeið fyrr en 18 ára, get þó engu svarað til um það hvaða aldur KSÍ gefur upp.
Mitt álit byggist á því að það þarf vissan þroska til að geta þjálfað, þó um sé að ræða 7. flokk.
Svo væri sniðugt hjá þér að pósta svarinu frá KSÍ, ef þú sendir þeim fyrirspurn.