Já, eftir leikinn. Þú skrifaðir fyrra komment þitt í hálfleik. Þá hafði hann bara fengið eitt gott færi.
Í seinni hálfleik fékk hann tvö úrvalsfæri en mér fannst hvorugt færið vera eitthvað skólabókardæmi um dauðafæri. Í fyrra skiptið datt boltinn allt í einu fyrir framan hann og hann skaut í slána…sem er smá óheppni. Og í seinna skiptið var færið mjög þröngt.
Engu að síður hefði Eiður átt að skora eitt eða tvö í það minnsta.