Sæll.
Það fer að einhverju leiti eftir því hver samþykkir greinina. Ég sendi greinina þína á kork, vegna þess að mér fanst þetta ekki vera grein, heldur miklu meira skoðun og æsing. Það skiptir mig engu hvaða lið er verið að tala um. Ég geri þetta nákvæmlega eins hjá öllum liðum. Þetta sem þú sendir inn var bara nokkrar skoðanir, stutt og enginn húmor og flokkaðist varla undir það að vera grein.
Greinin sem þú vísar í var að vísu samþykkt af öðrum, en ég hefði líka samþykkt hana, fyrir utan fyrirsögnina, því hún er bara til að æsa liðið, og koma skítkasti af stað. Hún hefur það hins vegar fram yfir þína að vera allavega nokkuð vel skrifuð, er ekki full af alhæfingum, og ber ekki þann keim að sá sem er að skrifa hana, sé bara að reyna að ná sér í stig.
sorry, ef þér finnst ég hafa verið ósanngjarn, en ef þig langar að fá þennan póst sem grein, þá skaltu einfaldlega skrifa betur, og þá skal ég með glöðu samþykkja hann.