Þetta var nú ekki mikið Ferreira að kenna þó hann hafi tæklað hann, hann snerti Rooney mjög lítið.. Hann á að vísu sökina að Rooney datt en ég held að hann Rooney hafi frekar brotnað í lendingunni heldur en í tæklingunni..
Og já, hann er sagður hafa ristarbrotnað og verður frá í a.m.k. 6 vikur, ég held að hann missi af HM.. Þegar ég handleggsbrotnaði þá var ég líka frá í 6 vikur og eftir það sagði læknirinn mér bara að hvíla mig í 4 vikur til að fá beinin til að gróa aðeins betur svo ég sé ekki að taka neitt mikla áhættu á að brotna aftur, svo ætti hann líka eftir að koma sér aftur í form þannig að ég held að þessi maður sé úr sögunni á HM 2006!
Video af meiðslum Rooney