Liverpool vann Arsenal á Anfield Road 1 - 0

Eina mark leiksins átti Luis Garcia sem kom inn á um það bil á 80 mínútu en hann skoraði á 86 mínútu.

Áður í leiknum hafði Steven Gerrard klúðrað víti[32 mín].

Cissé hefði átt að geta bætt við einu marki við í lokin þegar Lehman var í teig Liverpool og Cisse með boltann á miðjunni.

Lehman átti hreint út sagt magnaðan leik, hann var í öllum boltum og varði stórkostlega frá eigin manni, þann bolta sá ég inni.


Ég er með hugmynd, Rafa er dáður af Poolurum en ég er með hugmynd hvernig á að gera hann að goðsögn.

Rafa reddar sér Owen, kemur Fowler í betra form og tataa Fowler og Owen verða aftur besta sóknarparið í deildinni.