Tekið af Arsenal.is

Thierry Henry segist vera mjög ánægður að vera orðinn markahæsti leikmaður Arsenal, núna með samtals 186 mörk í öllum keppnum og í 303 leikjum.

“Það hljómar vel ‘Thierry Henry markahæsti leikmaður Arsenal frá upphafi’,” sagði Henry.

“Wrighty var frábær leikmaður og mun alltaf verða í sögubókum Arsenal. Að slá metið hans er hreint frábært. Ég vildi heldur hafa slegið metið á Highbury en það er ekki spurt að því hvar maður er þegar maður skýtur að markinu.”

Henry sagði enn og aftur að hann myndi ekki ræða samningsmál sín við Arsenal fyrr en undir lok þessarar leiktíðar.

“Ég er og mun alltaf verða 100% Arsenal maður” sagði hann að lokum.



Og fólk heldur að hann sé að fara.