Má ég spurja.. afhverju eru allir að segja að chelsea séu svona leiðinlegir. Eru þeir ekki búnir að skora langmestu mörkin í deildinni ? Hætta þessum skítköstum um Chelsea !
af því þeir spila öruggan bolta og það sést ekkert skemmtilegt í spilinu. Eins og þetta er allt gert eftir leiðbeiningum. Mörk er ekki jafnt og gaman:/ Getur skorað öll mörkin úr föstum leikaðferðum eins og Bolton eru þekktir fyri
“There's no such thing as stupid questions, just stupid people.”
Jújú ég viðurkenni alveg að chelsea spilar engan veginn skemmtilegan bolta þessa stundina. Það sem fer samt helst í taugarnar á okkur chelsea-stuðningsmönnum, eða allavega mér, eru yfirlýsingar púlara og manchester-manna um að chelsea séu leiðinlegir. Því að ManUtd og L'pool eru alls ekki að spila skemmtilegan bolta, og jafnvel leiðinlegri en chelsea. Chelsea eru þó að spila góðan fótbolta
Já ég viðurkenni alveg að Liverpool spila alsekki skemmtilegan bolta en ég var bara að segja gaurnum sem gerði korkinn ahverju Chelsea eru að spila leiðinlegan bolta. Eina sem mér finnst eitthvað skemmtilegt við að horfa á Chelsea spila er að sjá taktana hjá kantmönnunum ykkar.
Ekki ertu að segja mér að Man utd sé leiðinlegri bolta en Chelsea? Ef þú horfir til dæmis á leik Fulham-Man utd og Chelsea-Liverpool. Þá sérðu greinilega að sá fyrrnefndi er mun skemmtilegri en sá síðri sem er bara varnarbolti þar sem þolinmæðin er í aðalhlutverki. Chelsea spila svona helminginn af leiknum á milli varnamanna sem er bara svakalega leiðinleg að horfa á. Svo eru þeir að rukka fatlaða fullt gjald til að horfa á svona leiðinlegan leik
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana.
Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..