Dregið í Intertoto keppninni
Í morgun var dregið í Intertoto keppnina í höfuðstöðvum UEFA. Mótherjar Grindavíkur í fyrstu umferðinni í sumar verða frá Aserbaídsjan. Fyrri leikurinn fer fram um miðjan júní, en síðari leikurinn viku síðar. Sigurvegari þessarar viðureignar mætir liði frá Sviss, og sigurvegari þeirrar viðureignar mætir liði frá Hollandi, Írlandi eða Lettlandi.