Owen er nú bara 25 ára strákurinn, ekki eins og hann sé kominn á grafarbakkann, hvað þá að missa hraða.
En Shearer, já auðvitað er hann orðinn eldri og boltinn þeirra byggist mikið uppá honum (eins og hjá Liverpool og því eru margir sáttir við að Owen er farinn), en það er meira en að segja það að henda bara út aðalhetju liðsins (frá upphafi leyfi ég mér að segja). En svona langra sendinga bolti er nú ekki alltaf því að kenna að menn spila uppá sterkan striker, stundum er því líka um að kenna að miðjan er hreinlega ekki mjög sterk á boltanum, en menn þar eru kannski snöggir og góðir að vinna bolta nr 2 (s.s. frákastið frá Shearer).
Owen og Shearer saman hefðu verið mjög sterkt strikera par, en Newcastle og Liverpool reyndu einmitt að byggja upp svona pör með misgóðu árangri (Heskey í staðinn fyrir Shearer og það er nokkuð augljóst að það virkaði ekki eins og vonast var til, og síðan Bellamy í staðinn fyrir Owen sem hefði kannski virkað betur ef Bellamy hefði fundið það í sér að vera sæmilega heill heilsu í meira en 2-3 leiki í senn).