Sagt er frá því í morgun að Newcastle United hafi áhuga á því að semja við vinstri-bakvörð Tottenham, Christian Ziege. Leikmaðurinn verður samningslaus í júní.
Sir Bobby Robson, knattspyrnustjóri Newcastle átti í talsverðum vandræðum með vinstribakinn í vetur og sár vantar leikmann í þessa stöðu og er Þjóðverjinn efstur á blaði.