Skagamenn eru efstir í A-riðli efri deildar í deildabikarnum í knattspyrnu eftir sigur á Fram, 2:1, í Reykjaneshöll í gærkvöld. Hjörtur Hjartarson og Hálfdán Gíslason komu þeim í 2:0 á fyrstu 25 mínútum leiksins en Framarar pressuðu talsvert á lokakaflanum og Þorbjörn Atli Sveinsson minnkaði muninn.
Grindvíkingar, fengu sín fyrstu stig með því að sigra Fylki 2:0.