Beckham búinn að semja við Real
Staðfestar fregnir af teamtalk.com segja svo frá að David Beckham sé búinn að semja við Real Madrid. Samningurinn rennur út í Júní árið 2007 og fær Beckham 120000 pund á viku. Upphaflega var talið að Real hefði ekki efni á kappanum og það var rétt. Adidas kom til málanna með leynilegt tilboð sem nú hefur verið gert opinbert. Þeir borguðu Man Utd 38 milljónir punda og 2 miljónir fylgja eftir visst marga deildarleiki. Nú á Beckham aðeins eftir að gangast undir sjúkraskoðun en spurningin er hvaða númer hann fær fyrst að Raúl er með sjöuna og Figo með tíuna. Allar líkur eru á því að hann verði númer 24.