Svo gæti farið að David Beckham og Rio Ferdinand verði til í slaginn með Man Utd þegar liðið tekur á Deportivo La Coruna í Meistaradeildinni á Old Trafford á miðvikudaginn n.k. Becks hefur verið frá í tæpan mánuð með rifbrot sem og Rio Ferdinand sem tognaði á lærvöðva en þeir eru báðir óðum að ná sér.
Sir Alex Ferguson sagði í viðtali við fjölmiðla í morgun að tvímenningarnir hefðu hlaupið vel í gær fimmtudag og ef þeir geta tekið þátt í fótboltaæfingu á mánudaginn er hugsanlegt að ég velji þá í Deportivo leikinn.