Miklar vangaveltur eru á Ítalíu um það hvort
Chile-maðurinn Marcelo Salas hjá Juventus sé á förum frá félaginu.
Salas hefur sjálfur sagt að Barcelona og Tottenham séu á eftir sér. Tottenham vantar sóknarmann með Robbie Keane vegna þess að Les Ferdinand var sagt að Tottenham hefði ekki þörf fyrir honum lengur. Salas segir ástæðu þess að hann sé að fara frá Juventus, að hann fái ekki nógu mörg tækifæri.