Sir Alex Ferguson fer með varalið til Kýpurs. Sir Alex Ferguson hefur ákveðið að fara með “varaliðið” til Kýpurs í leikinn gegn Maccabi Haifa í Meistaradeildinni annað kvöld.

Ruud van Nistilrooy, Juan Sebastian Veron, Fabien Barthez, Ryan Giggs, David Beckham og Nicky Butt voru allir skildir eftir heima.

John O´shea verður í vörninni hjá Rio Ferdinand sem er að ná sér af meiðslum. Spánverjinn Ricardo verður í markinu.
Kieran Richardson verður einnig í byrjunarliðinu.
Á bekknum verða ungir strákar eins og Danny Pugh, Mark Lynch, Lee Roche, Daniel Nardiello og danski framherjinn Mads Timm.