Það er allt í lagi að dissa kringa, they'r not people, svo stela þeir bara búningahugmyndum frá Bruna á akranesi, varabúningurinn hjá KR er alveg eins og búningurinn hjá bruna!!! Skandall.
Svona gerist allstaðar í hita leiksins, allir að kalla aðra nöfnum, en Siggi Jóns fór kannski yfir strikið þarna, en siggi er nú ekki þekktur fyrir prúðmennsku á árum áður.
En það er ekkert skrýtið að gefa gult spjald fyrir leikaraskap, KR hlýtur að hafa fengið einhverja ítalska leiklistarþjálfara í vetur, detta og detta, þótt að það sé smá pot í þá! hrýna eins og svín ef það er komið við þá.
En þótt að skagamenn hafi tapað í gær, þá er það í lagi, KR tapaði líka, það er fyrir öllu.
Ég spái grindavík titlinum í ár, þeir eru með rosalega gott lið, og þeir eru bara vilausir ef þeir láta Atla fara úr markinu þegar hinn kemur úr meiðslum, Atli er miklu betri, vörnin er gríðarlega sterk, miðjan mjög góð og vinnusöm, og með Sinisa og kubbinn þarna, man ekki hvað hann heitir skotinn þarna, hann er bara býsna góður.
Hjörtur Hjartar má bara vera á bekknum fyrir mér, garðar gunnlaugs er svo miklu betri leikmaður, hjörtur er orðinn sami keikó og mikki bibbi í den, getur varla hlupið, staðsetningarnar hjá honum eru hræðilegar og hann kann ekki að fara með bolta. Skelfilegur leikmaður, garðar getur nú hlupið og er góður með boltann. Skora á óla þórðar að prufa að hafa garðar þarna frammi.