Félagaskipti Þórðar í Preston samþykkt
Þórður Guðjónsson mun að öllum líkindum leika fyrsta leik sinn með Preston þegar liðið mætir Manchester City á Maine Road á sunnudag.
FIFA gaf í dag út leikheimild fyrir Þórð. FIFA hafði áður neitað Þórði um um félagaskipti frá Las Palmas vegna slæmrar fjárhagsstöðu spænska liðsins.
David Moyes, stjóri Preston, segir á vef Teamtalk í dag að hann vonist til að geta látið Þórð leika á sunnudag.