Þá er komið að því!!! Stoke klúbburinn ætlar að efna til ferðar til höfuðborgar Englands, London, til að sjá íslendingaliðið etja kappi við Brentford 30 apríl. Þau sem hafa áhuga geta fylgt liðinu til Stoke og séð lærisveina Guðjóns Þórðarsonar taka á móti Swindon á hinum glæsilega leikvangi, Britannia 1 apríl. Á þessum tíma standa margir leikir yfir og geta menn og konur skellt sér á Stamford Bridge og séð Eið Smára og félaga og svo marga aðra leiki. Sem sagt; knattspyrnuveisla um páskana og eru allir áhagendur Stoke á Íslandi hvattir til að hringja í 820-4558 til að fá frekari upplýsingar. Verð á ferð liggur ekki fyrir þessa stundina en verið er að vinna í því og ættu upplýsingar um það að liggja fyrir fljótlega. Áfram Stoke og góðar stundir.
Kíkiið inn á www.stoke.is og fréttir.