Petit til sölu
Chelsea er búið að setja Emmanuel Petit á sölulitann aðeins
sjö mánuðum eftir að hafa keypt hann frá Barcelona. Þetta
kemur fram í News of the World í dag. Petit hefur engan vegin
staðið undir væntingum og er búinn að missa sæti sitt í
byrjunarliðinu. Hann kostaði 7,5 milljónir punda þegar hann
kom frá Barca en fæst nú fyrir 5. milljónir. Petit er sjöundi
leikmaðurinn sem Chelsea setur á sölulistann en hinir eru
Marcel Desailly, Mario Stanic, Albert Ferrer, Winston Bogarde,
Jody Morris og Celestine Babayaro.