Salas frá í sex mánuði
Marcelo Salas, leikmaður Juventus, þarf að fara í aðgerð á hné og verður frá í a.m.k. sex mánuði að því er greint er frá á heimasíðu félagsins. Salas meiddist í leik liðsins gegn Bologna á sunnudag, skömmu eftir að hafa komið inná sem varamaður, og eftir rannsóknir í gær kom í ljós að skurðaðgerðar þyrfti við. Juventus hefur nú aðeins einn sóknarmann, Nicola Amaruso, til að leysa þá David trezeguet og Alessandro del Piero af í framlínu liðsins en þeir ætla samt sem áður ekki að reyna að kaupa leikmann og segir Luciano Moggi, framkvæmdastjóri félagsins, að þeir séu búnir að eyða því sem þeir geti og leikmenn ungmennaliðsins verði að koma inn til að leysa málið.