Sigurður Örn úr leik í sumar
Varnarmaðurinn feiknarsterki Sigurður Örn Jónsson mun ekki leika meira með á þessu keppnistímabili. KR-ingar tilkynna það á heimasíðu sinni að Sigurður hafi ekki náð sér af hnémeiðslum sem hafi verið að angra hann í allt sumar. Sigurður hefur aðeins náð að taka þátt í níu leikjum með liðinu á þessu ári. Á myndinni hér til hliðar (af mbl.is) er Sigurður í leik gegn Stjörnunni í síðustu umferðinni í fyrra. Þessi tíðindi hljóta að ýta undir það að kallinn í brúnni, David Winnie, muni taka fram skóna að nýju. Næsti leikur KR er gegn Val og er sá leikur rosalega mikilvægur fyrir bæði lið. KR-ingar verða að komast úr fallsæti og Valsmenn meiga ekki misstíga sig því þá gætu þeir spilað í deild með Dalvík á næsta tímabili. Síðustu umferðirnar verða því algjör Háspenna lífshætta.