Silfurrefnum Fabrizio Ravanelli er mikið í mun að koma vel fyrir á Englandi að þessu sinni en hann var ekki þekktur fyrir annað en að væla og vera með leiðindi síðast er hann spilaði í ensku úrvalsdeildinni.

Því notar hann hvert tækifæri til þess að sleikja Tjallana upp og nú síðast hvatti hann David Beckham til þess að vera áfram á Englandi þar sem það væri besta deildin og það myndi því ekki skila neinu fyrir hann að fara til annars lands þar sem boltinn væri ekkert betri þar.

Hann sagði einnig að Manchester United væri yfirburðalið sem myndi hæglega vinna ítölsku deildina ef þeir væru að spila þar.

Það eru kannski ekki allir sammála kallinum þar.