Skagamaður sterki, Alexander Högnason, hefur gengið til liðs við Fylki.
Alexander er þrautreyndur leikmaður og hefur leikið allann sinn feril á Akranesi og lagði skóna á hilluna í haust. Nú hefur hann hins vegar ákveðið að taka þá fram að nýju.
Alexander styrkir leikmannahópinn fyrir lokasprettinn en það var áfall fyrir hópinn að Ómar slasaðist í vor og síðan fer Hrafnkell til Bandaríkjanna í lok ágúst.
Við bjóðum leikmanninn velkominn í Fylki.