McFarlane kominn með leikheimild
Framherjinn sem Fylkismenn fjárfestu í fyrir tímabilið, Trínidadinn Errol Edderson McFarlane, hefur loks fengið leikheimild, og má búast við honum í hópi Fylkismanna gegn KR í Bikarnum á fimmtudag. McFarlane kom til Árbæinga fyrir tímabilið, en erfitt hefur reynst að fá félagið Nejmeh, frá Líbanon, til að skrifa undir félagsskiptin. Nú virðist allt vera klárt, einungis á eftir að fá formlega staðfestingu frá KSÍ.