Leeds United gerði enn eina tilraun til að kaupa enska landsliðsmanninn Rio Ferdinand frá West Ham í dag. Enskir fjölmiðlar greina frá því að West Ham hafi hafnað 15 milljóna punda tilboði í þennan sterka varnarmann. Forsvarsmenn West Ham segja að Ferdinand verði um kyrrt hjá félaginu að minnsta út þetta tímabil. Ferdinand er á fimm ára samningi hjá West Ham en Leeds hefur um langa hríð reynt margsinnis að krækja í leikmanninn.