Grindvíkingar sigruðu Eyjamenn í seinasta leik fimmtu umferðar Símadeildarinnar í kvöld. Leikurinn endaði 3:1 og skoraði Grétar Hjartarson tvö marka Grindvíkinga og Sinisa Kekic eitt, en Gunnar Þorvaldsson skoraði mark Eyjamanna.
Önnur úrslit fimmtu umferðar voru þau að KR-ingar sigruðu Keflvíkinga sannfærandi, 2:0, Skagamenn lögðu Blika að velli í hávaðaroki, 3:1, FH-ingar unnu 1:0 sigur á Valsmönnum og Fylkismenn unnu Framara 4:2.