Íslenska U21 árs landsliðið sigraði U21 árs lið Möltu 3:0 á KR-vellinum í kvöld. Veigar Páll Gunnarsson kom Íslendingum yfir á 40. mínútu, Bjarni Guðjónsson skoraði annað mark Íslendinga á 45. mínútu og það var svo Orri Hjaltalín sem gerði út um leikinn mínútu síðar þegar hann skoraði þriðja markið.
A-landslið þjóðanna mætast í undankeppni HM í knattspyrnu á Laugardalsvellinum á morgun klukkan 16:00. Tveir nýir leikmenn koma inn í liðið frá því í sigrinum á Möltu í vor. Auðun Helgason og Ríkharður Daðason taka sæti Andra Sigþórssonar og Hermanns Heiðarssonar.