Redknapp Harry Redknapp fyrrum stjóri West Ham hefur sagt að Southampton sé eina liðið sem hann hafi áhuga á að taka við.
Redknapp var, einsog allir vita, skyndilega hent út einsog sorpi eftir deilur við stjórnarformann West Ham.
Rupert Lowe stjórnarformaður Southampton reyndi á dögunum að fá Steve McClaren til þess að taka við liðinu en það gekk ekki, þannig að hann er væntanlega enn að leita af manninum í starfið.
Hinn 54 ára gamli Redknapp segir að Southampton sé vel rekið og skipulagt lið sem stendur á miklum tímamótum, þeir eru að flytja inn á nýjan leikvang og séu mjög efnilegir og til alls líklegir.
Persónulega þætti mér gaman að sjá Harry Redknapp á hliðarlínu Southampton.