Atli kynnir liðið gegn Dönum
Atli Eðvaldsson, landsliðsþjálfari, tilkynnti í gær þá átján leikmenn sem taka þátt í landsleiknum gegn Dönum á Laugardalsvelli 2. september nk.. Liðið er skipað sömu leikmönnum og unnu Svía á dögunum, auk Sigurðar Jónssonar og Heiðars Helgusonar. Birkir Kristinsson og Árni Gautur Arason eru markverðir og aðrir leikmenn eru Rúnar Kristinsson, Sigurður Jónsson, Eyjólfur Sverrisson, Arnar Grétarsson, Þórður Guðjónsson, Ríkharður Daðason, Helgi Sigurðsson, Hermann Hreiðarsson, Helgi Kolviðsson, Bryjnar Björn Gunnarsson, Auðunn Helgason, Tryggvi Guðmundsson, Pétur Marteinsson, Heiðar Helguson, Arnar Þór Viðarsson og Eiður Smári Guðjonsen. Leikurinn er í senn fyrsti leikur undankeppni HM og liður í Norðurlandamótinu. Vinni Íslendingar leikinn höfum við tryggt okkur sigur í Norðurlandamótinu.