Svo virðist sem eitthvað kalt loft sé komið á milli Cragnotti
forseta Lazio og Verons. Cragnotti sagði að Veron gætti verið
seldur vegna réttarhaldanna um stöðu Verons sem EU leikmaður.
Veron svaraði þegar hann var á leið frá réttarhöldunum að hann vill
vera áfram hjá Lazio og sagði að ef forsetinn vilji selja mig þá er
það ekki vegna réttarhaldanna.
Lögmaður Verons, Dr Petrelli, sagði að tilboð hafi borist frá Real
Madrid. Hann sagði að upphæðin væri tvöfalt það sem Lazio borgaði
fyrir Veron frá Parma eða yfir 4 milljarðar íslenskra króna.