Það verður sannkalluður stórleikur á dagskrá sýnar í kveld. Þar taka Arsenal menn á móti Valencia. Það er löngu ljóst að það er hörð rimma framundan enda Valencia ekki auðsigraðir. Þeir sönnuðu það þegar þeir náðu í úrslit meistaradeildar í fyrra. Arsenal menn hafa aldrei komist svona langt í meistardeildinni og búast því við erfiðum leik. Lauren miðvallarleikmaður Arsenal varar menn við of mikilli bjartsýni enda sé hér á ferðinni eitt besta lið Spánar. Hann ætti að vita hvað hann segir enda hefur hann leikið á spáni allan sinn feril. Hann segir ennfremur að Arsenal eigi möguleika séu allir strengir strengdir. Arsene Wenger knattspyrnustjóri Arsenal segir að sýnir menn séu reiðubúnir og verða að sýna allan sinn styrk og karakter til þess að sigra í kvöld, enda búnir að reyna að komast svona langt í 2 ár. Það er ljóst að mínir menn verða að ná að sigra með að minnsta kosti eins til tveggja marka mun annars verður róðurinn erfiður!! Áfram Arsenal….