Finni til Charlton
Charlton hefur gengið frá kaupum á finnska landsliðsmanninum Jonatan Johansson frá Glasgow Rangers og er kaupverð hans 450 milljónir króna. Rangers keypti Johansson frá Flora Tallin fyrir þremur árum síðan á 60 milljónir en hann átti erfitt uppdráttar hjá skoska stórliðinu á síðustu leiktíð og lék fáa leiki.