Weah yfirgefur AC Milan
George Weah hefur yfirgefið herbúðir AC Milan og hyggst ganga í raðir AS Roma í næstu viku.Weah var í láni hjá Chelsea á síðasta tímabili og lundúnarliðið Fulham vildi fá hann í baráttuna í 1.deild.Weah hefur hins vegar í hyggju að starfa sem þjálfari í framtíðinni og telur að það tækifæri fái hann með því að halda til Rómar þar sem hann getur starfað að nýju með gamla þjálfaranum sínum ,Fabio Capello.