Eins og flestir vita þá greindi Eric Cantona frá því ekki alls fyrir löngu að hann mundi gjarnan vilja taka við stjórastarfinu af sir Alex þegar han lætur af störfum. Hann sagðist vita að það væri erfitt verkefni en taldi sig engu að síður vera rétta manninní þetta.
Nú nokkrum dögum síðar hefur sir Alex tjáð fjölmiðlum að honum lítist bara vel á Cantona sem eftirmann sinn, segir að hann sé einmitt maðurinn í verkið, og þekkir Alex franska snillinginn nú betur en flestir.
Það væri nú óneitanlega forvitnilegt að sjá hvernig Eric mundi ganga sem knattspyrnustjóra…