mbl.is greinir frá því í dag að kringar ætli að spila 4-5-1 þegar þeir mæta Bröndby í dag. Af þessu leiðir að Guðmundur Benediktsson þarf að verma varamannabekkinn, til að byrja með a.m.k.

Uppstillinging verður væntanlega eftirfarandi:

Kristján Finnbogason verður í markinu, Sigurður Örn Jónsson og Bjarni Þorsteinsson bakverðir og Þormóður Egilsson og David Winnie miðverðir. Miðjumenn verða Sigursteinn Gíslason, Þórhallur Hinriksson og Þorsteinn Jónsson, og kantmenn þeir Sigþór Júlíusson og Einar Þór Daníelsson. Fremstur fer svo Andri Sigþórsson.