Heyrst hefur að Aston Villa sé búið að næla sér í hinn 25 ára gamla kólimbíumann Juan Pablo Angel á um 9,5 milljón pund og ætti hann að vera til í slaginn 30 des ef öll leyfi fást.
Svo gæti farið að Darren Huckerby verði seldur til Celtic á næstunni en eftir komu Robbie Keane til Leeds eru 5 framherjar hjá liðinu.
Marco Branca fyrrum leikmaður Middlesbrough hefur unnið mál gegn liðinu og verður Boro að greiða honum 500000 pund fyrir 9 jan. en hann fór í mál við boro vegna þess að þeir riftu samningi við Branca því þeir héldu að ferill hans væri á enda, en Branca spila nú í annari deildinni í þýskalandi. Ef þeir borga ekki fyrir 9 jan. gætu stig verið dregin af þeim eða þeir útilokaðir frá leikmannakaupum í einhvern tíma.