Erlendir fótboltafjölmiðlar greina frá því í dag að ítalska stórliðið Inter sækist eftir írska undrabarninu Robbie Keane og leikmanni Real Zaragoza, Savo Milosevic, til þess að halda uppi samkeppni í framherjasveit sinni, en núverandi framherjar liðsins eru m.a. Ronaldo, Christian Vieri og Hakan Sukur.
Sagt er að forseti félagsins, Massimo Moratti, sé reiðubúinn að bjóða 11 milljónir punda í írann knáa.