Nú er Liverpool búið að bjóða 5,5 milljónir punda í Christian Ziege, leikmann Middlesbrough. Ef af kaupunum verður rýfur hvítlaukurinn Houllier 50 milljón punda múrinn, þ.e. í kaupum á leikmönnum, nú þegar hefur hann eytt 48,5 milljónum punda í 17 leikmenn, þar af hafa þó nokkrir komið í gegnum frjálsa sölu. Frá því í mars á þessu ári hefur félaginn hins vegar eytt því sem nemur 20 milljónum punda í kaup á leikmönnum, þar af fóru 11 milljónir á einu bretti í Emile Heskey.
Stjóri Boro er hins vegar á því að sleppa takinu á þýska landsliðsmanninum, en nú er bara að bíða og sjá!