omg… að lesa þetta. Að fara inná með það sem ásettning að hefna sín á manni, og meiða hann. Svoleiðis fólk ætti ekki að vera hleypt inná völlinn aftur, allavega ekki fyrr en hann hefur verið settur í geðrannsókn. Ég held að rétta refsingin hefði verið að senda hann í geðrannsókn, en ekki 5 leikja bann. Keane er hætta inná fótboltavellinum.
Að ætla að berja gaur fyrir að spila gáfulega.. þvílík heimska. “pirrar mig að sjá shearer gera svona”. Jájá, það er kanski pirrandi að halda með liði sem er að tapa, og horfa svo uppá mann halda boltanum svona… því jú þetta getur tekið góðan tíma af klukkunni. Réttlætir það barsmíðar?
Man þegar ég var að æfa íþróttir, þá varð ég vitni af því að félagar mínir vildu meiða 2 leikmenn, þessi 7 ár sem ég æfði. Einn fékk dúndru í andlitið, og fór útaf og markmiði náð. Ekkert fallegt við það, þegar maður vissi að þetta var ásetningur, en líklegast ekki varanlegur skaði (nema ef þetta er síendurtekið, og þá er þetta mjög alvarlegt). Svo var það hinn gaurinn, og þegar hann loksins meiddist í leik, þá vorum við á undan hinu liðinu að hlúa að honum… og við náðum í klakapoka og sprengdum hann og festum á löppina, og við bárum hann útaf, ásamt einum í hinu liðinu. Hatrið risti ekki dýpra en það að þetta var bara tal, til að peppa sig upp. Sem sagt ég hef á 7 ár ferli í íþróttum 2x orðið vitni af svona tali, og einu sinni séð eitthvað svona. Mér finnst ekki rétt þegar tæplega 30 maður lætur svona….