Þetta er lagið úr Requiem for a Dream, það var líka notað í aðaltrailernum fyrir Lord of the Rings: The Two Towers.
Það er afar óalgengt að tónskáld semji svona rosalega endurtekningarsamt. Reyndar eru nokkur sem eru í áttina við þetta, t.a.m. Arvo Pärt þótt tónlistin hans sé töluvert dýpri en þetta.
Þetta lag er varla samið af neinum þar sem áhrifin frá Carmina Burana og Sálumessu Mozarts eru bara OF mikil.
Annars sá maður að nafni Clint Mansell (Sahara, Doom) sem sá um tónlistina í RfaD, ef þetta lag var ekki hluti frumsaminnar tónlistar gæti verið að art director myndarinnar Judy Rhee (The Hours) hafi einhvernveginn komið því að.
Miðað við önnur verkefni þessara ágætu manna virðast þeir ekki bera mikla ábyrgð á þeirri snilld sem Requiem for a Dream er.