Ég var í nokkur ár með kennara sem kunni ekki einu sinni á flautu og kenndi mér allt vitlaust. Ég nennti líka ekki að æfa mig fyrir hann. Svo lét hann bara uppáhaldsnemendurna taka stigspróf. Svo fékk ég annan kennara og hann sagði að ég ætti að vera komin mikið lengra og lét mig taka 3. stig, spilaði meira að segja of erfið lög í prófinu.
Svo átti ég að taka 4. í vor en ég bað um að sleppa því af því ég tók öll samræmdu prófin. Það var svo lítill tími til að æfa sig.