Æi það er alltaf svo hallærislegt að taka einhvern fiðlu/klarinett/flautu/óbókonsert og láta rafmagnsgítar spila það. Öll þessi hljóðfæri sem ég greindi frá að ofan hafa miklu betri möguleika á að tjá tilfinningar og rafmagnsgítar passar bara ekkert inní þetta. Þar að auki eru þessir fjandans rafmagnsgítarar útum allt! Það væri hægt að byggja nýtt meginland úr öllum rafmagnsgíturum heimsins. Það er til fullt af góðri tónlist fyrir þá og algjör óþarfi að fara að troða þeim inní fræga konserta og kúka á vilja tónskáldsins.