Þetta er hann Grettir. Blandaður Pers og Norskum Skógarketti. Fæddist 17 jún. 2008. Orðinn alveg 8 ára í seinasta mánuði… Eld gamall og smá þybbinn kisi ;)
Æj, dúllan :D En blanda af nfo og persa ? Persar eru síðhærðir og nfo hálfsíðhærðir. Síður feldur er þá eina sem þessir kettir bera. Afhverju er Grettir þá snögghærður :$ ?
heh veistu ég bara veit það ekki, en eins og þú sérð þá er hann með augun af norskum skógarketti, andlitið sýnir soldið pers leikan en æji, ég hef aldrei pælt rosalega mikið í þessu :P en ég vissi að pabbinn var/er NSK (gæti verið að hann sé blanda af einhverju öðru kyni, sá hann aldrei) og mamman var Pers (hreinræktaður)
og já btw… hann fer gríðarlega mikið úr hárum, búin að skipta um fóður og allt prufa nýtt sem mælt er með. við greiðum honum 2-3 í viku og það er alltaf slóð eftir hann :P… kanski hárin eru þarna til staðar en detta af svo fljótt :P hehe
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana.
Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..