Ég lét taka mína úr sambandi. Þetta er heljarinnar aðgerð fyrir læður sem tók mína u.þ.b. viku að jafna sig á. En ég fann ekki fyrir neinum breytingum í persónuleika. Hún hafði aldrei verið neitt kúrskrímsli en hún sótti ekkert minna í mig. Núna er hún bara enn meiri kúrilíus og er orðin 7 ára.
Sumir halda því fram að þær geti orðið fjandsamlegri en það hlýtur að velta á kisunni. Þú losnar við lóðaríið hjá henni, breimandi fressina fyrir utan gluggann hjá þér og kettlingavesenið. Þetta hefur engin áhrif á þær líkamlega til lengri tíma.
Vertu bara viss um að þú hafir tíma og aðstöðu til að sjá um læðurnar c.a. fyrsta sólarhringinn eftir aðgerðina. Mín var svo yfir dópuð á svefnlyfjum að ég gat ekki skilið hana eftir eina nema í kassa. Menn mæla með að taka kassa sem er opinn að ofan og setja í hann teppi svo þær verði sér ekki að voða. Og muna að fara varlega með þær, ekki taka bara undir framloppurnar svo þú teygir ekki á skurðinum og svona.
Mæli samt með þessu, mikið betra fyrir alla ef þú stefnir ekki á undaneldi.