Við fjölskyldan erum að fá okkur litla kisu.
Hann er 12 vikna, kassavanur og alles.
Við erum að fara í sumarbústað yfir áramótin og helgina eftir,þ.e.a.s. 31-02 og 02-05 semsagt aldrei lengra en í 2 daga í einu. Er óhætt að skilja hann eftir allan þennan tíma, hann verður orðinn 15 vikna þá?
Svo er það spurning með gamlárskvöld ef hann verður einn heima?
Á okkar heimili er 2 strákar einn 8 ára og einn tæplega 2 ára, þessi eldri hefur alveg þroska og skilning til að láta kettlingnum liða vel, veit ekki alveg með þann stutta?
En hinn týpíska virka dag yrði kötturinn einn heima frá 08:00 til 14:00 er það ekki í lagi ?