Það er hægt að fá pillu fyrir læður, en sjálf aðgerðin er auðvitað gáfulegri ef ákveðið er að hún eignist ekki fleiri kettlinga.
Þetta er heljarinnar skurðaðgerð, en hún er að mestu leyti hættulaus. Þú verður samt að gera ráð fyrir því að annast hana eftir aðgerðina, því svæfingalyfin gera þær nánast ósjálfbjarga yfir nótt. Mín vældi svo mikið að ég þorði ekki að fara frá henni í marga klukkutíma.
En þetta er mikið betra en að þurfa að láta svæfa kettlinga aftur og aftur, fresskettir koma ekki jafn mikið til hennar eftir að hún hættir að gefa frá sér lyktarmerki og er mikið minna mál en pillan.